Jæja loksins skrifa ég,komst ekki inn á síðuna til að skrifa en núna er þetta komið í lag.Var soldið svekt að standa í stað en ég veit að ég má ekki láta svona, því að ég er búin að missa allveg helling en maður vill alltaf meira.En ég er mjög samviskusöm að skrifa allt niður sem ég borða og vikta en að undanskildum einum degi þá slumpaði ég á. Ég ætla að halda áfram að skrifa allt og merkja xinn öll inn á matarprókramið.Ég hef ekki verið að fá mer deserta. Ég er að fara að hitta stelpurnar í hittingnum okkar 19 mars og þá ætla ég að spurja út í þetta allt saman. En ég vona að viktotia verði með flotta tölu í næstu viku, en allavega er þetta orðið heldur betur fast á mer ég segi ekki annað.
Baráttukveðjur til ykkar allra og gangi ykkur sem best.Og ég þakka ykkur öllum fyrir commentin á síðuna mína.
Kristín Ósk.
Æj það er svo leiðinlegt þegar manni gengur hægt, en það er um að gera að vera sterk og halda áfram, þú ert svo rosalega dugleg Stína mín og svo áttu eftir að rjúka af stað aftur
Haltu áfram að vera svona dugleg.
Kveðja
Krissa
Elsku Stína mín þú átt alla mína samúð þetta er svo leiðinlegt þegar maður er aleg að standa sig í öllu, en við styðjum hvora aðra dúllan mín þess vegna gengur þetta hjá okkur.
Haltu áfram að vera svona dugleg.
Kveðja
Ragga
OH hvað ég hlakka til að hitta þig 19.mars…Bíð með spenning og tilhlökkun í maganum og finnst tíminn allt of lengi að líða. Þú ert að standa þig vel og það er það sem skiptir mestu máli. Hugsaðu bara ef þú værir ekki í átaki hvað vigtin væri þá komin í!!!Þetta kemur allt með kalda vatninu eins og þú hefur sýnt og sannað þá kemur þetta í stórum hollum hjá þér. Alltíeinu hókus pókus, Kristín fór niður um 2 kg… Lofa því…
Gangi þér áfram vel dúlla
‘Eg er viss um að Vigtoría verði góð við þig næst, en það er víst alveg eðlilegt að standa í stað annaðslagið en þú stendur þig rosalega vel, haltu því áfram og þá kemur þetta allt saman….
Kveðja Íris