Var svo glöð í gær.

February 28, 2006

´Verð eðeins að montta mig. Þannig er að í gær fór ég til heimlislæknisins minns,vegna að ég er búin að vara svo slæm í vöðvafestu í herðunum. Og ég fór að tala um sykurinn að hann væri orðin svo góður hjá mer og það var mánuður síðan að hann mæli sykurinn, þá var ég um 6 í gær var ég 3,2 sem er allveg frábært og ég hef í svo mörg ár tekið inn 4 blóðsykurstöblur og hann minkaði skamtinn niður í 2 töblur og ég er svo ánægð með það.Hver veit nema að ég eigi einhvern tíman eftir að hætta með blóðþristingstöblurnar kannski, en allavega er ég búin að fara illa með mig á þessari FITU í gegnum árin það er á hreinu.En nú er ég búin að breyta um lífsstíl og því ætla ég að halda áfram.Í morgun hringdi ég í vinkonu mína á Íslandi og var svo gaman að heyra í henni og þau hjónin ætla að heimsækja okkur í okt og það verður gaman, hún er með eigin retstur og þau ætla að halda árshátíð hjá okkur já það varður æði.Vonandi veldur nýja síðan mín ykkur ekki neinum óþægindum en mer finnst minna vera skrifað comment her á þessa síðu en það getur bara verið eitthvað tilfallandi.Jæja þá er frk Viktoría á morgun og vona að hún sýni flotta tölu. En allavega er ég byrjuð að vikta allt ofan í mig allan mat og hætt að slumpa í að það gerði oft.Og ég ætla að taka Hildi til fyrirmyndar hún fór í afmæli og tók bara viktina með ser og viktaði matinn sinn, þá bara hugsaði ég ókey nú skal ég hætta þessu slumpi og vikta allar máltíðir og það ætla ég að gera her eftir.Gangi ykkur öllum sem best. Og baráttukveðjur til ykkar allra. Kv Kristín Ósk

 


Nokkurar línur..

February 27, 2006

Í dag ætla ég að reyna að setja inn mælistrikuna,ég get það ekki ein ég þarf nefnilega hjálp til að setja það inn. En fyrir þá sem ekki vita hvað ég er þung, þá koma tölurnar her.Ég byrjaði á breyttum lífsstíl 18 0kt 2005 og þá var ég 108,6 kg, en  í dag er ég 89.8 svo það eru fokin 18,8 kg á 18 vikum svo það eru bara 1,2 kg eftir í 20 kg og markmið mitt í þessari adrennu eru að missa 30 kg.Ég er ferlega ánægð með að vera búin að breyta um síðu.Ég var að panta ýsu hjá ísdlandsfisk svo ég get þá farið að borða ýsu og það verður æði ég er svo vanaföst að mer finnst ýsan alltaf best.Svo er viktun hjá mer á miðvikudaginn og vonandi verður frú viktoría góð og kemur með góða tölu.Jæja gangi ykkur öllum vel í ykkar átaki. ER að spá í að setja inn á síðuna mína fljótlega matseðilinn yfir daginn er allveg viss að það hjálpar mikið ef maður gerir eitthvað ekki rett þá veit ég að þið leiðrettið mig. Ég bara gat það ekki á meðan ég var með hitt bloggið því það var svo fljótt að detta út.Kannski byrja ég að skrifa inn á miðvikudaginn.

Baráttukveðjur til ykkar allra.


Jæja loksins er ég komin með nýja síðu.

February 25, 2006

Hjartanlega velkominn á síðuna mína. Jæja loksins let ég vera að því að gera nýja síðu var búin að hugsa þetta soldið lengi.Mer fannst svo svekkjandi að vera búin að skrifa helling niður og svo bara kom þetta ekki inn.En vonandi læri ég fljótlega á þetta allt saman því ég var allveg með hina síðuna á hreinu en allt lærist þetta.Eitt getum við ekki gert og það er gestabók , en vonandi kemur það bara fljótlega,en endilega skrifið þið mer bara comment.

Baráttukveðjur til ykkar allra. Kristín Ósk.


Smá prufa

February 25, 2006

Sæl verið þið öll og velkominn á nýju síðuna mína :)